Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
18.7.2007 | 12:38
Derby á Englandi ;)
Ég sagði í síðasta bloggi að ég ætlaði að segja aðeins frá þeim yndislega bæ Derby sem er staðsettur á miðju Englandi eða eins og það kallast á ensku Midland :). Ég bjó í Derby í eitt og hálft ár og líkaði mjög vel enda er hann eins og áður hefur komið fram miðsvæðis á Englandi og stutt í allar áttir. Það tók mig aðeins 40 min að keyra til Birmingham sem er næst stærsta borgin á Englandi, einn tíma og fimmtán min til Great Manchester, hálftíma til Nottingham og svo var reyndar um 2 tímar til London en það var nú ekki vandamálið þegar þú varst kominn út á M1 hraðbrautina. Ég reyndi nú oft að fá upp úr fólki hvað margir byggju í Derby og oftast fékk ég töluna 300.000 þús svo sögðu sumir að það væri hátt í milljón þegar high season í University væri á veturnar, þannig að ég hef ekki fengið alveg rétta tölu um íbúafjölda þar ennþá. Derby er afar fallegur og notalegur bær og fyrir þá sem fíla pöbba menninguna þá eru barir út um allt það er líklega einn bar á hvern íbúa...alveg magnað. University of Derby er held ég í öðru sæti yfir bestu háskóla á Englandi á eftir Cambridge, ég held ég fari með rétt mál þar. Þessi skóli er rosalegasti skóli sem ég hef séð hingað til það er risa bar inn í skólanum (sko mjög flottur bar)og bjórinn kostar 1 pund sem gera 122 krónur eins og gengið er núna.... pælið í því. Í skólanum ásmat barnum er hárgreiðslustofa, fatabúðir, banki, sjoppur, veitingastaðir, kaffihús, líkamsrækt, plötubúð, markaðir og ég veit ekki hvað og hvað alveg geggjað, mér brá þegar ég sá þetta fyrst þetta var alveg eins og í bíó mynd:). Ég segi nú bara hvernig á að vera hægt að læra á svona stað haha:). Svo fyrir utan er allt mjög glæsilegt það eru fótboltavellir, rúgbý vellir, og frá barnum er hægt að horfa á leiki sem eru í gangi :) þetta eru bara snillingar. Oft hefur verið sagt að Derby sé best geymda leyndarmálið á Englandi, og ekki er ég hissa á því. Það er margt hægt að gera í Derby eins og að spila golf á glæsilegum golfvöllum og er nánast hægt að spila allan ársins hring. Ég spilaði oft með vinnufélögum golf á 2 golfvöllum rétt fyrir utan Derby og voru þeir golfvellir hrikalega flottir, fullt af trjám, vötnum og svo kanínur og íkornar út um allt. Hálftíma frá Derby er hægt að fara í einn stærsta tívolígarð í evrópu, sá garður heitir Alton Towers www.altontowers.com og er bara fullorðins. Alton Towers er með stærsta rússíbana í evrópu og hraðasta held ég líka hann heitir Rita queen of speed og fer á rugl hraða. Þessi garður er svo rosalegur mér leið eins og ég væri að koma í Jurassic park, þú kemur inn í garðin í lest sem er á teinum hátt uppi og sérðu þar yfir allt og þvílík sjón ussss. Ég mæli líka með West midland safari park http://www.wmsp.co.uk/cgi-bin/WebObjects/safaripark.woa/wa/default þar sem allar tegundir af dýrum og eru þau laus út um allt og þú keyrir í gegnum hann og má þar sjá dýr eins og Ljón, Tigers, fíla, nashyrninga, gírafa, úlfa, flóðhesta og bara allar tegundir. Svo get ég ekki gleymt að nefna einn bæ sem er ca 30 min í keyrslu frá Derby sem heitir Matlock on bath, þetta er bær sem er algjör paradís umhverfið er eins og gerist flottast á Englandi og mæli ég með því að fólk keyri um sveitina á Englandi og komi við í þessum bæ þvílíkt flott. Þar er hægt að fara á bát í á sem rennur í gegnum bæin og fara í svona útsýnisferð milli klettana yfir bænum í svona skíðalyftu (sjá mynd)... alveg geggjað gaman. Ég gæti haldi endalaust áfram að tala um Derby og allt sem er í kring en læt þetta duga í bili. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir. LAAAALET
Matlock on Bath
Útsýnisdótið í Matlock on Bath
Alton Towers
University of Derby
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2007 | 15:47
Football
Manchester United gerðu jafntefli, 2:2, við japanska liðið Urawa í fyrsta leik sínum í Asíuferð félagsins. Darren nokkur Fletcher og sá allra besti Cristiano Ronaldo skoruðu mörk united í frekar bragdaufum leik, enda kannski ekki skrýtið eftir að lið united hafði ferðast í 15 tíma ca deginum áður en leikurinn var. Owen og Nani spiluðu ekki í þessum leik en vonum að þeir komi við sögu í þeim næsta og sýni okkur snilldar takta ;). Næsti leikur United verður gegn FC Seoul á föstudaginn.
Sagt er frá í fréttum í dag að Téves muni koma til United í vikunni og vona ég svo innilega að þær fréttir séu réttar. Margir tala um að hann og Rooney passi ekki saman vegna Þess hversu líkir leikmenn þeir séu, ég held að það sé bullshit þetta eru jú kannski líkir leikmenn en þeir hafa það sem þarf og það er sigurvilji og þeir eru báðir eins og jarðýtur og það getur ekki annað en boðað gott þeir verða yndislegt frammherjapar..... let me tell you ;).
Svo er nú margt að gerast á leikmannamarkaðinum, Torres kominn til Liverpool (what a shame), Robben að fara til Real sem er bara fínt mál, svo virðist sem Shaun Wrigth-Phillips sé á leiðinni til Tottarana sem er fínt líka. Henry farinn til Barca ég hefði reyndar verið til í að hafa hann í ensku deildinni en samt alveg í lagi. Svo eru Derby og Sunderland komin upp í úrvalsdeild sem eru bara frábærar fréttir. Roy Keane okkar frábæri fyrirliði til margra ára að gera góða hluti hjá Sunderland og vonar maður að hann haldi því áfram og taki jafnvel við United einhvern daginn :). Ég bjó svo í Derby þannig að mitt second lið á Englandi er Derby og vona ég að þeir verði spútnik liðið í ár og verði í um miðja deild. Ég fór nú á nokkra heimaleiki með Derby á glæsilega leikvellinum Pride Park sem er í Pride park :) LAAALET og var stemmingin þar all svakaleg. Derby alveg yndislegur bær segi ykkur meira frá honum seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2007 | 10:37
British Open !!
:) British Open er að nálgast og allir golfarar farnir að brosa breytt. Já það er ekki leiðinlegt að eitt stærsta golfmót ársins sé að fara að byrja eftir ör..fáa daga, Tigerinn búinn að staðfesta þáttökuna sýna og lítur þetta allt mjög vel út. Völlurinn sem spilað verður á heitir Carnoustie í Skotlandi og á víst að vera helvíti flottur. Mín spá er sú að Tiger og Adam Scott leiki í bráðarbana um fyrsta sætið og Scott vinni eftir harða baráttu, en svona eitthvað óvænt þá vinnur Sergio Garcia sitt fyrsta stórmót ;) LAAALET. Mótið byrjar 19. júlí
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2007 | 11:52
Man.utd að gera stóra hluti
Já það er alveg óhætt að segja það að Manchester United ætla sér stóra hluti í framtíðinni.
Við erum að tala um þrjá nýja leikmenn og enga smá leikmenn það er að sjálfsögðu Owen Hargreaves sem er frábær viðbót á miðjuna, undrabarnið Nani frá Sporting sem er talinn vera næsti Ronaldo og svo littli dinho sjálfur Anderson sem kom frá Porto já nákvamlega þvílík snilld. Og þetta er ekki allt núna er verið að orða Teves Argentíska snillinginn við United ussss og er það talið mjög líklegt að hann sé að koma. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá held ég að þetta lið eigi eftir að verða það svakalegsta sem sést hefur á Old Trafford frá upphafi þ.e.a.s ef að allir smella saman sem ég efast ekki um að þeir geri. Megi fallega og yndislega GREAT Manchester verða Mekka fótboltans í heiminum um ókomna framtíð eins og það hefur verið í gegnum tíðina AMEN.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.7.2007 | 13:46
Rólegt í Ytri Rangá en fengum þó 2 stk
Já það var rólegt í Ytri Rangá hjá okkur á föstudaginn en lifnaði aðeins yfir þessu þegar við fengum svæði 4, fyrir neðan ægisíðufoss. Svanþór Laxdal var ekki lengi að nýta sér klöppina fyrir neðan ægisíðufoss og nældi þar í einn 10 punda Lax, glæsilegur fengur :). Þetta var reyndar það eina sem kom upp á þessum frábæra veiðistað í okkar holli. Ég náði ekki neinum lax en tók einn 3 punda Urriða á svæði 1 á stað sem kallast Staur, fyrst hélt ég að þetta væri Lax en svo var ekki, bara einn brjálaður Urriði sem lét eins og stórlax :) . Þrátt fyrir rólega veiði þá er alltaf jafn gaman að vera í góðra vina hópi og góðu veðri út í náttúrunni. LAAALET
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2007 | 17:48
Það er komið Blog !!
Já það er komið blog, ég hef nú aldrei verið góður penni en ég ætla nú samt að prófa mig áfram í þessum blog heimi. Það sem ég ætla að blogga meðal annars um er það sem gerir lífið svona yndislegt, Fótbolti, golf, veiði, U2 og vinir. Ég ætla nú reyndar að tala um allt milli himins og jarðar til að krydda aðeins upp á þetta en þetta verður svona það helsta.
All the best R54
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
54
Eldri færslur
31 dagur til jóla
Hvað er þitt áhugamál ?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar